Flutt í Hveragerði!
Verið velkomin til okkar í Hveragerði við hliðina á Bónus í Sunnumörk.
Forsíða
Myndir úr búðinni
Vöruúrvalið

Englamyndir

Hringið í síma 555-1314 eða sendið okkur tölvupóst ef þið viljið meiri upplýsingar eða panta vörur.

Verið ávallt velkomin!

Hannyrðabúðin var stofnuð 1969 í Hafnarfirði. Eigendur eru þeir sömu.
© alvara.is 2011

Hannyrðabúðin er í Bónushúsnuð í Hveragerði.

Opið mánudaga til fimmtudaga
kl. 12 - 18
og föstudaga og laugardaga kl. 11 - 18

Verið velkomin!

Sími 555-1314, GSM 691-2314

Hannyrðir eru okkar fag!

Í Hannyrðabúðinni er verslað með allt sem viðkemur hannyrðum; prjón, hekl og útsaum af öllum gerðum. Einnig hafa þar verið seldar ýmsar aðrar vörur, s.s. dúkar og teppi, föndurvörur og smávara ýmiskonar. Vöruflokkarnir eru margir og mjög fjölbreytilegir og litadýrðin fágæt.

Í gegnum tíðina hefur verið veitt margvísleg þjónusta í Hannyrðabúðinni, s.s. leiðsögn, ráðgjöf og aðstoð ýmiskonar og þar hafa verið haldin mörg námskeið. Þar er haldið við gömlum hefðum og handbragði og einnig fylgst vel með nýjungum og tískustraumum. Óhætt er að segja að þar búi mikil sérþekking á mörgu smáu.

Hannyrðabúðin selur mikið úrval af áteiknaðri handavinnu s.s. vöggusett, dúka og punthandklæði sem framleitt er sérstaklega fyrir verslunina undir vörumerkinu frá Jensínu.

Viðskiptavinirnir eru á öllum aldri og hafa margir fylgt versluninni frá upphafi og margir vaxið upp með henni. Má kannski segja að nú sé að koma inn þriðja kynslóðin. Viðskiptavinirnir koma víða að af landinu og einnig erlendis frá og póstkröfuþjónusta hefur alltaf verið stór þáttur í rekstrinum.